tik tok krispí pasta snakk með fetaosta ídýfu
/ færslan er unnin í samstarfi við Pottagaldra
Course millimál, snarl
Cuisine amerískt
Pasta
- 250 g pasta ég notaði mini pasta skrúfur en mæli með að nota stærra pasta
- 1 msk ólífu olía
- 1/2 dl rifinn prima donna ostur eða parmesan
- 1 tsk ítalskt pastakrydd frá Pottagöldrum
- 1/2 tsk hvítlauksduft frá Pottagöldrum
- salt og pipar eftir smekk
Fetaosta ídýfa
- 50 g hreinn fetaostur
- 1 msk rjómaostur
- 1 hvítlauksgeiri
- 2 msk ólífu olía
- 1 msk hunang
Pasta
Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum og saltið vatnið vel
Setjið soðna pastað í stóra skál og blandið saman við olíunni, ostinum, ítalska pastakryddinu, hvítlauksduftinu, salti og pipar
Setjið í air fryer við 200 gráður í um það bil 10-15 mínútur og hristið vel í skúffunni 2-3x svo að allt pastað nái að verða krispí
Ég sá eina á Tik Tok gera svona pasta án þess að hafa air fryer. Þá hitaði hún pastað á bökunarplötu við 220 gráður. Fyrst í 8 mínútur, velti svo pastanu og svo aftur í 5 mínútur.
Ég hef ekki prófað þessa aðferð, gæti farið eftir ofnum hversu lengi pastað þarf að vera inni svo ég mæli með að fylgjast vel með :)
Keyword airfryer, pottagaldrar, snakk