Go Back

Mangó og quinoa salat með sinneps dressingu

ágætlega stór uppskrift fyrir tvo - magnið af grænmetinu ekkert heilagt, hægt að leika sér með þessa uppskrift :)
Total Time 30 minutes
Course aðalréttur, hádegismatur, meðlæti
Servings 2 manns

Ingredients
  

Salat

  • 2,5 dl quinoa
  • 1 tsk grænmetiskraftur
  • 1 mangó
  • 1 paprika
  • 1/2 gúrka
  • 1/4 rauðlaukur
  • 10 kirsuberjatómatar
  • 1 msk sesamfræ
  • fetaostur má sleppa

Sinneps dressing

  • 1 dl ólífu olía
  • 1/2 dl dijon sinnep
  • 1/2 dl sítrónusafi

Instructions
 

  • Sjóðið quinoað samkvæmt leiðbeiningum og kryddið með grænmetiskrafti
  • Skerið grænmetið smátt og setjið í skál
  • Hrærið saman innihaldsefnin í sósuna þar til allt hefur blandast vel saman
  • Þurrristið sesamfræin á pönnu þar til þau brúnast aðeins
  • Hægt að bera fram salatið á tvo vegu, annað hvort að blanda öllu saman í stóra skál eða að bera fram þar sem quinoað er sér - grænmetið sér - dressin sér og hver og einn raðar á sinn disk
  • Mér finnst gott að bera salatið fram með fetaosti en ef þú sleppir því er salatið vegan :)

Notes

Ef þú gerir ráð fyrir afgangi mæli ég með að bera salatið fram í sitt hvoru lagi og allir raða á sinn disk sjálfir. Þá getur þú hitað quinoað upp daginn eftir og blandað svo salatinu og dressingunni saman við. Mjög gott daginn eftir líka :)
 
VEGAN - hægt að sleppa fetaostinum eða skipta út fyrir vegan feta ost!
Keyword grænmetisréttur, hollt, salat