Go Back

Appelsínu kjúklingur - innblásinn af Panda Express

Total Time 45 minutes
Servings: 2 manns
Course: aðalréttur, kvöldmatur
Cuisine: amerískt, kínverskt

Ingredients
  

Kjúklingur
  • 350 g úrbeinuð kjúklingalæri
  • 1/4 bolli hveiti
  • 1/2 bolli maismjöl
  • 1 egg
  • salt og pipar
  • grænmetisolía til djúpsteikingar
Appelsínusósa
  • 2 msk soja sósa
  • safi úr hálfri appelsínu
  • 2 msk eplaedik
  • 1/2 bolli púðursykur
  • 1 tsk sesam olía
  • 2 pressaðir hvítlauksgeirar
  • 2-3 cm rifið engifer
  • 1/2 tsk chili flögur
  • 2 msk vatn
  • 2 msk maismjöl

Method
 

  1. Skerið kjúklinginn munnbita
  2. Blandið saman í skál hveiti, maismjöli, salti og pipar
  3. Í aðra skál blandið saman hrærðu eggi, salti og pipar
  4. Setjið kjúklinginn fyrst ofan í eggið svo hveitið - endurtakið við alla bitana og setjið til hliðar á disk
  5. Blandið saman soja sósu, appelsínu safanum, eplaediki, púðursykri, sesam olíu, hvítlauk, engifer og chiliflögum í pott á miðlungs/háan hita
  6. Fáið suðuna upp og bætið hrærið svo vatni og maismjöli við. Hrærið öllu saman þangað til sósan er orðin þykk. Takið af hitanum og setjið sósuna í skál og geymið á meðan þið djúpsteikið kjúklinginn
  7. Djúpsteikið kjúklinginn upp úr grænmetisolíu og setjið svo kjúklinginn á eldhúspappír til þess að losa auka olíuna
  8. Blandið kjúklingnum saman við appelsínu sósuna
  9. Berið fram með vorlauk, sesam fræjum og hrísgrjónum

Notes

Auðvelt er að tvöfalda eða þrefalda uppskriftina ef þess þarf.
Gerðu þetta að grænmetisrétt - skiptu út kjúklingnum fyrir blómkál eða tofu. Ef þú vilt gera réttinn vegan, getur þú skipt út egginu fyrir kjúklingabaunasafa.