Ingredients
Equipment
Method
- Hitið Air Fryerinn við 175 gráður
- Blandið saman í skál hveiti, grísku jógúrti og lyftidufti
- Hrærið með sleif þar til þið getið það ekki lengur, notið þá hendurnar
- Hnoðið þar til deigið er ekki lengur blautt og er orðið slétt og fínt - 3 til 5 mínútur
- Skiptið deiginu í 4 hluta
- Mótið beyglur úr deiginu. Annað hvort með því að rúlla deiginu í lengju og tengja hana svo í hring eða með því að búa til kúlu og búa til gat með puttanum
- Penslið eggi yfir beyglurnar, setjið nóg af beyglukryddi og ost ef þið viljið
- Raðið beyglunum í Air Fryer körfuna og setjið körfuna inn
- Leyfið að bakast í 12-15 mínútur eða þar til beyglurnar eru orðnar gylltar og fallegar
- Leyfið beyglunum að hvíla í að minnsta kosti 5 mínútur á bökunargrind þegar þær eru tilbúnar
Notes
Ég notaði restina af egginu sem var notað í penslunina, steikti það á pönnu og setti á beygluna.
