Go Back

Bláberja muffins - innblásið af Starbucks

Mínar allra uppáhalds möffins!
Prep Time 10 minutes
Cook Time 25 minutes
Total Time 35 minutes
Servings: 10 muffins
Course: brunch, snarl, veisla
Cuisine: amerískt

Ingredients
  

Möffins
  • 2 1/2 dl hveiti
  • 1 1/2 tsk lyftiduft
  • 1 dl sykur
  • 1/4 tsk salt
  • 1/2 tsk vanilluduft má líka nota vanillusykur
  • 1 egg
  • 1 1/2 dl jógúrt
  • 1/2 dl ljós olía
  • 2 dl fersk bláber
Mulningur á toppinn
  • 1 dl hveiti
  • 1/2 dl sykur
  • 50 g bráðið smjör

Method
 

  1. Hitið ofninn við 190 gráður
  2. Hrærið þurrefnunum saman í skál
  3. Bætið egginu, jógúrtinu og olíunni út í deigið og hrærið vel
  4. Bætið bláberjunum út í og blandið þeim varlega saman við deigið
  5. Búið til toppinn með því að bræða smjör og blanda því við hveiti og sykur
  6. Setjið deigið í muffins form og setjið vel af mulningnum á toppinn á hverri og einni
  7. Setjið möffinsna inn í ofn í 22-25 mínútur eða þar til tannstöngull kemur hreinn út ef þú stingur í þær - þær eiga líka að vera orðnar gylltar og fallegar
  8. Leyfið að kólna áður en þið borðið eða berið þær fram

Notes

Auðvelt er að stækka uppskriftina ef þess þarf - ég geri oft minna þar sem ég vil að það sem ég baka klárist í staðinn fyrir að eiga of mikið og geta ekki klárað á meðan það er gott :)