Go Back

chili con carne

/ uppskriftin er unnin í samstarfi við Matlifun
Prep Time 10 minutes
Cook Time 8 minutes
Total Time 18 minutes
Servings: 3 fullorðnir
Course: aðalréttur
Cuisine: mexíkóskt

Ingredients
  

  • 1 krukka Chili Con Carne frá Matlifun
  • 1 msk uppáhalds mexíkóska kryddið þitt
  • 3-4 tortillur
  • rjómaostur með svörtum pipar
  • rifinn ostur
  • kóríander má sleppa

Method
 

  1. Byrjið á því að hita ofninn - 220 gráður (undir og yfir hiti)
  2. Setjið smá olíu á pönnu (sniðugt að nota pönnu sem má fara inn í ofn) og hellið innihaldinu úr krukkunni á pönnuna
  3. Kryddið með mexíkósku kryddi
  4. Smyrjið tortillurnar með rjómaosti með svörtum pipar, lokið þeim og skerið til helminga
  5. Þegar blandan er orðin heit, hellið yfir í eldfast mót (ef þú ert að nota pönnu sem má fara inn í ofn er það óþarfi og notaðu pönnuna sem eldfast mót), raðið tortillunum ofaná og rifna ostinn yfir
  6. Setjið inn í ofn í um 10-12 mínútur eða þar til osturinn er orðinn gylltur
  7. Berið fram með hrísgrjónum og sýrðum rjóma - mjög gott að hafa kóríander líka!
  8. NJÓTIÐ

Notes

Fullkomin stærð fyrir tvo fullorðna og tvö börn :)