Go Back
vegan píta með hreinu soja kjöti vegan og vegan pítu sósu

Grænmetispíta með heimagerðri pítusósu - vegan

/ færslan er unnin í samstarfi við Pottagaldra
Prep Time 20 minutes
Cook Time 10 minutes
Total Time 30 minutes
Course: aðalréttur, kvöldmatur

Ingredients
  

  • 3 pítubrauð við borðum 1 og hálfa pítu á mann
  • 280 g hreint soja kjöt ég notaði Oumph! The Chunck
  • 2 msk Rótargrænmetið frá Pottagöldrum
  • 90 g salat blanda
  • 10 kirsuberja tómatar
  • 1/4 rauðlaukur
  • sriracha sósa má sleppa
Pítusósa
  • 3 msk vegan majónes
  • 2 tsk Herbs de Provence frá Pottagöldrum

Method
 

  1. Steikið soja kjötið upp úr smá olíu og kryddið með Rótargrænmetis kryddinu frá Pottagöldrum
  2. Skerið grænmetið eins og þið viljið hafa það og setjið í stóra kál
  3. Blandið saman majónesi og Herbs de Provence frá Pottagöldrum
  4. Ég notaði frosin pítubrauð svo ég hitaði þau í smá stund í ofni
  5. Skerið sojakjötið í munnbitastærðir og setjið út í skálina með grænmetinu
  6. Setjið pítusósuna út í skálina líka og blandið öllu vel saman
  7. Ég sker píturnar í tvennt og set blönduna svo inn í - finnst ég koma meiru fyrir þannig og auðveldara að borða pítuna
  8. Ég toppaði svo pítuna með smá sriracha sósu en það er ekki nauðsynlegt og má alveg sleppa. Mér finnst gott að hafa smá sterkt með pítunni :)
  9. Berið fram einar og sér eða með góðum kartöflubátum