Grænmetis píta með heimagerðri pítusósu – vegan

Þeir sem hafa verið að fylgjast með mér lengi þekkja kannski lið sem ég hef verið með nokkuð reglulega á instagram hjá mér – meatless monday. Ég er mikil áhuga kona um grænmetisfæði og hef prófað mig mikið áfram í þessu seinustu tvö ár. Það sem kom mér mest á óvart var hversu auðvelt það er að gera góðan grænmetisrétt. Ég hef ekki tekið þetta neitt lengra en að hafa allavega grænmetisrétt einu sinni í viku en hver veit hvort að það verði eitthvað meira en það einn daginn.

Mig langaði að deila með ykkur þessari ofur einföldu vegan uppskrift af pítu. Ég prófaði að krydda hreint soja kjöt með nýja Rótargrænmetiskryddinu frá Pottagöldrum og kom það ótrúlega vel út með heimagerðri vegan pítusósu með Herbs de Provence kryddinu frá Pottagöldrum. Bæði kryddin eru án salts en það er auðvelt að þekkja saltlausu kryddin frá Pottagöldum þar sem þau eru með grænum miða en þau sem innihalda salt eru með gulum miða.

Ég tók upp stutt myndband á meðan ég var að útbúa píturnar og setti á Tik Tok – þú getur skoðað myndbandið HÉR

Færslan er unnin í samstarfi við Pottagaldra

Grænmetispíta með heimagerðri pítusósu – vegan

/ færslan er unnin í samstarfi við Pottagaldra
Undirbúningur 20 minutes
Eldunartími 10 minutes
Heildartími 30 minutes

Hráefni

  • 3 pítubrauð við borðum 1 og hálfa pítu á mann
  • 280 g hreint soja kjöt ég notaði Oumph! The Chunck
  • 2 msk Rótargrænmetið frá Pottagöldrum
  • 90 g salat blanda
  • 10 kirsuberja tómatar
  • 1/4 rauðlaukur
  • sriracha sósa má sleppa

Pítusósa

  • 3 msk vegan majónes
  • 2 tsk Herbs de Provence frá Pottagöldrum

Aðferð

  • Steikið soja kjötið upp úr smá olíu og kryddið með Rótargrænmetis kryddinu frá Pottagöldrum
  • Skerið grænmetið eins og þið viljið hafa það og setjið í stóra kál
  • Blandið saman majónesi og Herbs de Provence frá Pottagöldrum
  • Ég notaði frosin pítubrauð svo ég hitaði þau í smá stund í ofni
  • Skerið sojakjötið í munnbitastærðir og setjið út í skálina með grænmetinu
  • Setjið pítusósuna út í skálina líka og blandið öllu vel saman
  • Ég sker píturnar í tvennt og set blönduna svo inn í – finnst ég koma meiru fyrir þannig og auðveldara að borða pítuna
  • Ég toppaði svo pítuna með smá sriracha sósu en það er ekki nauðsynlegt og má alveg sleppa. Mér finnst gott að hafa smá sterkt með pítunni 🙂
  • Berið fram einar og sér eða með góðum kartöflubátum
Course: aðalréttur, kvöldmatur
Keyword: grænmetisréttur, pottagaldrar, vegan

Leave a Reply

Close
© 2021 tinnath
Close