Go Back
kebab vefja með kjúkling og jógúrtsósu

Kebab vefja með kjúkling og heimagerðri jógúrtsósu

/ færslan er unnin í samstarfi við Pottagaldra
Total Time 30 minutes
Servings: 4 vefjur
Course: aðalréttur, kvöldmatur
Cuisine: Mediterranean

Ingredients
  

Kjúklingur
  • 500 g kjúklingur ég notaði úrbeinuð kjúklingalæri
  • 2 pressaðir hvítlauksgeirar
  • 1 dl hreint jógúrt
  • 1 msk ólífu olía
  • 1 msk tómat paste
  • 1/3 sítróna - börkur og safi
  • 1 msk Kebab krydd frá Pottagöldrum
Jógúrtsósa
  • 2 dl grískt jógúrt
  • 1 gúrka miðjan tekin frá
  • 1 pressaður hvítlauksgeiri
  • 1/3 sítróna - safi og börkur
  • 1 msk fersk mynta
  • 1/4 tsk Dill frá Pottagöldrum
  • 1/2 tsk flögusalt
  • 1/4 tsk svartur pipar
Vefja
  • 4 stórar tortillur
  • salatblöð
  • 200 g kirsuberjatómatar skornir í 4 bita
  • 1/4 rauðlaukur
  • sriracha sósa eftir smekk

Method
 

  1. Setjið kjúklinginn í skál ásamt öllum hráefnunum sem eiga að fara með honum. Ef þið hafið tíma, er mjög gott að leyfa þessu að marinerast í góðan tíma. Ég setti kjúklinginn í marineringu kvöldið áður til þess að flýta fyrir en má líka elda strax.
  2. Blandið öllu saman í jógúrt sósuna.
  3. Steikið kjúklinginn á pönnu eða grillið.
  4. Þegar kjúklingurinn er orðinn eldaður í gegn, takið af hitanum og skerið í litla bita.
  5. Smyrjið vefjurnar með jógúrtsósunni og setjið kál, tómata, rauðlauk, kjúklinginn og sriracha sósu.
  6. Lokið vefjunni og steikið á sömu heitu pönnunni og þið steiktuð kjúklinginn á. Nokkrar sek á hverri hlið þar til vefjan fer aðeins að brúnast.
  7. Gott að bera fram með góðum frönskum :)

Notes

Ef þið viljið kjúklinginn aðeins sterkari mæli ég með að bæta við 1/4 tsk cayenna pipar frá Pottagöldrum í marinerninguna. 
Ef þið viljið ekki sterkt, t.d. til að gefa börnum þá mæli ég samt með að hafa einhverja aðra sósu á móti jógúrt sósunni í staðinn fyrir sriracha - eins og t.d. salsa sósa.