Go Back

Klístraðir BBQ blómkálsvængir - vegan

/ færslan er unnin í samstarfi við Rafha
Prep Time 15 minutes
Cook Time 10 minutes
Franskar 10 minutes
Total Time 35 minutes
Servings: 4 manns
Course: aðalréttur, meðlæti

Ingredients
  

Blómkál
  • 1 miðlungs blómkál
  • 2,5 dl hveiti
  • 2,5 dl plöntumjólk ég notaði haframjólk
  • 1 tsk salt
  • 1 tsk laukduft
  • 1 tsk hvítlauksduft
  • 5 dl panko brauðrasp gæti þurft meira/minna
  • 500 ml sweet BBQ sósa
Sætar franskar
  • 1 poki frosnar sætar franskar
  • salt eftir smekk
Hvítlaukssósa
  • 2 dl vegan majónes
  • 3 pressaðir hvítlauksgeirar
  • 2 msk sítrónusafi
  • 2 tsk salt
  • 1 tsk pipar

Equipment

  • Domo Air Fryer

Method
 

Blómkál
  1. Hitið air fryerinn við 200 gráður
  2. Skerið blómkálið niður í munnbita
  3. Blandið saman hveiti, plöntumjólk, salti, laukdufti og hvítlauksdufti í skál og pískrið saman. Þetta á að vera á þykkt við pönnukökudeig.
  4. Í aðra skál, setjið panko brauðrasp
  5. Setjið blómkálið ofan í deigið og veltið svo upp úr brauðraspinum
  6. Raðið blómkálinu í air fryer körfuna, ekki of marga í einu - ég byrjaði á að air frya helminginn og svo restina
  7. Hitið í 10 mínútur - opnið air fryerinn eftir 5 mínútur og hristið aðeins körfuna svo að bitarnir snúist við og brúnist á öllum hliðum
  8. Setjið í skál og veltið upp úr sætri BBQ sósu
Sætar franskar
  1. Hitið air fryerinn við 200 gráður
  2. Hellið frönskunum í körfuna, mega alveg fara ofaná hvor aðra
  3. Hitið í 10 mínútur eða þar til endarnir eru farnir að dekkjast - opnið air fryerinn eftir 5 mínútur og hristið aðeins körfuna svo að franskarnar snúist við og brúnist á báðum hliðum
  4. Saltið eftir smekk þegar þær eru tilbúnar
Hvítlaukssósa
  1. Blandið öllum hráefnunum saman í skál og hrærið

Notes

Prófið að skipta frönskunum út fyrir hrísgrjón og toppið blómkálið með vorlauk og sesam fræjum.