Go Back
lakkrístoppar með eitt sett súkkulaði

Lakkrístoppar með Eitt Sett súkkulaði bitum

/ færslan er unnin í samstarfi við Nóa Síríus
Prep Time 30 minutes
Cook Time 20 minutes
Kæling 10 minutes
Total Time 1 hour
Servings: 24 toppar
Course: eftirréttur
Cuisine: íslenskt

Ingredients
  

  • 3 eggjahvítur (1 dl eggjahvítur úr brúsa)
  • 200 g púðursykur
  • 300 g Eitt Sett plötur frá Nóa Síríus (tvær plötur)

Method
 

  1. Hitið ofninn - 150 gráður
  2. Í tandurhreina skál - þeytið eggjahvíturnar þar til þær eru farnar að freyða aðeins
  3. Bætið púðursykrinum útí í skömmtum
  4. Þegar allur púðursykurinn er kominn út í leyfi ég hrærivélinni að þeyta allt saman í góða stund þar til að blandan er orðin stífþeytt - ættir að geta hvolft skálinni án þess að blandan haggist
  5. Skerið Eitt Sett plöturnar smátt og blandið varlega út í með sleif
  6. Setjið á bökunarplötu - ca ein tsk hver toppur
  7. Inn í ofn í 15-20 mínútur (fer eftir ofnum) - ég baka mína toppa í 17 mínútur
  8. Takið úr ofninum og færið toppana yfir á bökunargrind svo að topparnir nái að kólna