Brjótið lasagna plöturnar og leggið til hliðar. Þær eiga það til að fara í allar áttir svo farið varlega!
Í pott, setjið olíu og smjör og steikið hvítlaukinn þar til hann er orðinn mjúkur
Bætið hakkinu við ásamt kryddunum
Þegar hakkið er eldað í gegn bætið rjómanum, pastasósunni og kjötsoðinu og leyfið suðunni að koma upp
Bætið lasagna plötunum við og lækkið hitann
Leyfið plötunum að sjóða í um 15 mínútur en hrærið reglulega svo að þær brenni ekki við
Á þessum tíma er sniðugt að útbúa ricotta blönduna með því að blanda saman ricotta, parmesan og salti + pipar
Þegar lasagna plöturnar eru orðnar eldaðar í gegn bætið mozzarella, parmesan og basiliku
Berið fram í skál með ricotta fyllingunni ofaná ásamt parmesan og ferskri basiliku