lasagna í potti

Ég elska rétti sem koma saman í einum potti! Hér erum við með ótrúlega gott og auðvelt lasagna í potti toppað með ricotta fyllingu. Fullkominn haust réttur.

lasagna í potti

uppskriftin var unnin í samstarfi við Krónuna
Skammtar 6 manns
Heildartími 1 hour

Hráefni

LASAGNA

  • 1 msk steikingarolía
  • 1 msk smjör
  • 4 hvítlauksgeirar
  • 500 g nautahakk
  • 2 tsk oreganó
  • 2 tsk paprikukrydd
  • 2 tsk hvítlauksduft
  • 2 tsk laukduft
  • 1/2 tsk chili flögur
  • 680 g pastasósa frá Bowl & Basket með hvítlauk
  • 150 ml rjómi
  • 1 líter soðið vatn + 2 kjötkrafts teningar
  • salt og pipar eftir smekk
  • 350 g lasagna plötur frá Grøn Balance
  • 1 dl rifinn mozzarella ostur
  • 1 dl rifinn parmesan ostur
  • 1/2 dl söxuð basilika

RICOTTA FYLLING

  • 250 g ricotta ostur
  • 1 dl rifinn parmesan ostur
  • salt og pipar eftir smekk

Aðferð

  • Brjótið lasagna plöturnar og leggið til hliðar. Þær eiga það til að fara í allar áttir svo farið varlega!
  • Í pott, setjið olíu og smjör og steikið hvítlaukinn þar til hann er orðinn mjúkur
  • Bætið hakkinu við ásamt kryddunum
  • Þegar hakkið er eldað í gegn bætið rjómanum, pastasósunni og kjötsoðinu og leyfið suðunni að koma upp
  • Bætið lasagna plötunum við og lækkið hitann
  • Leyfið plötunum að sjóða í um 15 mínútur en hrærið reglulega svo að þær brenni ekki við
  • Á þessum tíma er sniðugt að útbúa ricotta blönduna með því að blanda saman ricotta, parmesan og salti + pipar
  • Þegar lasagna plöturnar eru orðnar eldaðar í gegn bætið mozzarella, parmesan og basiliku
  • Berið fram í skál með ricotta fyllingunni ofaná ásamt parmesan og ferskri basiliku
Course: aðalréttur
Keyword: auðvelt, lasagna, pottur

Leave a Reply

Close
© 2021 tinnath
Close