Ingredients
Method
- Sjóðið quinoað samkvæmt leiðbeiningum og kryddið með grænmetiskrafti
- Skerið grænmetið smátt og setjið í skál
- Hrærið saman innihaldsefnin í sósuna þar til allt hefur blandast vel saman
- Þurrristið sesamfræin á pönnu þar til þau brúnast aðeins
- Hægt að bera fram salatið á tvo vegu, annað hvort að blanda öllu saman í stóra skál eða að bera fram þar sem quinoað er sér - grænmetið sér - dressin sér og hver og einn raðar á sinn disk
- Mér finnst gott að bera salatið fram með fetaosti en ef þú sleppir því er salatið vegan :)
Notes
Ef þú gerir ráð fyrir afgangi mæli ég með að bera salatið fram í sitt hvoru lagi og allir raða á sinn disk sjálfir. Þá getur þú hitað quinoað upp daginn eftir og blandað svo salatinu og dressingunni saman við. Mjög gott daginn eftir líka :)
VEGAN - hægt að sleppa fetaostinum eða skipta út fyrir vegan feta ost!
