Ingredients
Method
- Stilltu ofninn á 200 gráður
- Skerið paprikuna, rauðlaukinn og hvítlaukinn smátt
- Hitið smá olíu á pönnu, steikið vegan hakkið, paprikuna, rauðlaukinn, hvítlaukinn og kryddið með cumin, möluðum chili, salti og pipar
- Skolið svörtu baunirnar og bætið þeim út á pönnuna ásamt gulu baununum. Takið af hitanum þegar allt er orðið vel eldað og blandað saman
- Skerið tortillurnar í mjóaar ræmur
- Smyrjið smá olíu í botninn á eldföstu móti svo að ekkert festist við
- Setjið helminginn af salsa sósunni í botninn, raðið tortillunum yfir sósuna, helmingnum af grænmetisblöndunni, klípur af chili majónesi yfir allt og helminginn af ostinum. Endurtakið þetta svo - salsa, tortillur, grænmetisblandan, chili majó og ostur
- Inn í ofn í um það bil 20 mínútur eða þar til osturinn er orðinn vel gylltur
- Þegar þetta er tilbúið, takið úr ofninum og stráið kóríander yfir allt (má sleppa)
- Leyfið réttinum að kólna í um það bil 5 mínútur áður en þið skerið í teninga
- Berið fram með sýrðum rjóma
Notes
Það er líka mjög gott að skipta út chili majónesinu fyrir ostasósu!
