Go Back

Pizzasnúða lengja

/ færslan er unnin í samstarfi við Matlifun
Prep Time 10 minutes
Cook Time 30 minutes
Total Time 40 minutes
Course: snarl, veisla

Ingredients
  

  • 1 upprúllað pizzadeig
  • 100 g rjómaostur
  • 1/2 krukka pizzusósa frá Matlifun
  • 100 g pepperoni
  • 100 g krydd havarti ostur má nota annan ost
  • 100 g cheddar ostur má nota annan ost
  • parmesan ostur má sleppa
  • basilika má sleppa

Method
 

  1. Hitið ofninn við 200 gráður - undir og yfir hiti
  2. Rúllið út pizzadeiginu og smyrjið með rjómaosti og pizzusósunni
  3. Skerið niður pepperoni og dreifið yfir ásamt ostinum
  4. Rúllið deiginu upp og klippið í það göt og ýtið hverjum part til hliðar sitt á hvað svo að einhverskonar "flétta" myndist
  5. Setjið inn í ofn og þegar 20 mínútur eru liðnar, bætið álpappír ofaná svo að snúðarnir verði ekki of dökkir að ofan en nái að eldast í gegn í 5-10 mínútur í viðbót.
  6. Fyrir smá extra setti ég parmesan og basiliku yfir þegar ég tók snúðana úr ofninum

Notes

Leikið ykkur með hráefni og krydd og gerið snúðanna að ykkar eigin :)