Go Back

pizzasnúðar með rjómaosta fyllingu

/ færslan er unnin í samstarfi við pottagraldra
Prep Time 10 minutes
Cook Time 35 minutes
Hefun 1 hour
Total Time 1 hour 45 minutes
Course: millimál, nesti, snarl

Ingredients
  

  • 1 dl volg mjólk
  • 6 gr þurrger
  • 1 tsk hunang
  • 15 g brætt smjör
  • 1 egg
  • 4 dl hveiti
  • pizzasósa eftir smekk
  • 200 g rifinn ostur
  • rjómaostur eftir smekk
  • Heitt Pizzakrydd frá Pottagöldrum eftir smekk
  • Prima Donna eða Parmensan ostur eftir smekk

Method
 

  1. Hitið mjólkina þar til hún er orðin volg (37 gráður ca) og blandið þurrgerinu saman við. Leyfið að standa í um það bil 5 mínútur.
  2. Bætið hunanginu, egginu og smjörinu út í og hrærið létt saman.
  3. Setjið krók á hrærivélina og setjið hveitið út í. Leyfið vélinni að hnoða deigið þar til kúla hefur myndast.
  4. Leyfið að hefast í um það bil klukkustund eða þar til deigið hefur tvöfaldast.
  5. Fletjið úr deiginu og setjið pizzasósu, rjómaostaklessur og rifinn ost.
  6. Rúllið deiginu upp og skerið í snúða
  7. Setjið snúðana í eldfast mót og kryddið með heita pizzakryddinu frá Pottagöldrum og rífið svo smá Prima Donna ost yfir.
  8. Bakið við 175 gráður í 35 mínútur.

Notes

Ef þið fýlið ekki sterkt er alltaf hægt að skipta heita pizzakryddinu út fyrir venjulega pizzakryddið.