Ingredients
Method
Botn
- Setjið smjör, suðusúkkulaði, síróp og rjómakúlurnar saman í pott og bræðið við vægan hita - þetta getur tekið smá tíma
- Þegar allt er bráðið og vel blandað saman, takið af hitanum og bætið Rice Krispiesinu út í og hrærið varlega saman með sleikju
- Spreyjið smelluform með smá olíu og setjið Rice Krispies blönduna í formið. Sléttið vel úr svo að kakan verði ekki skökk
- Setjið í kæli í um það bil klukkutíma
Bananarjómi
- Þeytið rjóma og stappið banana
- Blandið varlega saman með sleikju
Rjómakúlu karamellu sósa
- Bræðið saman í rjómakúlur og rjóma í potti við vægan hita
Lokaskref
- Takið kökuna úr forminu og setjið á kökudisk
- Setjið banana rjómann ofan á botninn og hellið rjómakúlu sósunni yfir allt
- Skreytið með nýja sumar Banana Nóa Kroppinu
Notes
Ef þú ert í tímaþröng gætir þú græjað botninn daginn áður og bananarjómann ásamt rjómakúlusósuna rétt áður en þú ætlar að bera kökuna fram. Bananarnir eiga það til að brúnast en það sést lítið daginn eftir - mér finnst það bara best ef það er útbúið sama dag :)
