Ingredients
Method
- Skerið mangó, papriku, gúrku og tómata í teninga og setjið í skál
- Kreistið ástaraldin út í skálina eða notið skeið til að veiða þau upp úr hýðinu
- Saxið rauðlauk og kóríander smátt og setjið í skálina
- Notið rifjárn og rífið börk af hálfu lime út í skálina og kreistið svo safann út í líka
- Salt og pipar eftir smekk
- Blandið öllu saman með skeið og berið fram með uppáhalds tacoinu ykkar, mexíkóska réttnum eða jafnvel bara með snakki.
Notes
Auðvelt er að stækka uppskriftina ef fleiri en tveir eru í mat.
Þetta er ágætlega stór uppskrift sem meðlæti fyrir tvo en ég elska að eiga smá afgang og borða daginn eftir.
Ef þið viljið vinna ykkur fram í tímann er hægt að græja salsað fyrr um daginn eða daginn áður og bera það svo fram. Salsað verður þá bragðsterkara eftir að það hefur fengið að liggja saman í kæli :)
