Byrjið á því að setja kjúklingabaunirna í pott með matarsóda. Setjið vatn í pottinn og leyfið suðunni að koma upp - leyfið að sjóða í um það bil 10 mínútur.
Síið vatnið frá og skolið með smá köldu vatni
Setjið baunirnar í matvinnsluvélina ásamt hvítlauksgeiranum. Leyfið vélinni að vinna þar til baunirnar eru orðnar að mauki.
Á meðan vélin er í gangi bætið við tahini, klökum, sítrónusafa, cumin og salti. Leyfið vélinni að vinna í 4-5 mínútur þar til þið eruð orðin ánægð með áferðina og hún silki mjúk.
Setjið hummusinn í skál og búið til smá holu í miðjunni. Setjið góða ólífu olíu í miðjuna og setjið krydd eftir smekk. Ég persónulega elska að setja sítrónupipar og ef ég vil aðeins sterkt með set ég líka cayanne.