Ingredients
Method
- Hitið ofninn - 160 gráður blástur
- Bræðið smjörið við vægan hita
- Þeytið saman smjör, ljósan púðursykur og sykur
- Bætið við eggi og vanilludropum
- Bætið við Biscoff spread
- Næst notið þið sigti og setjið hveiti, salt og matarsóda í gegnum sigtið og ofaní blönduna. Blandið svo varlega með sleikju.
- Skerið niður hvítt súkkulaði (ef þú ert að nota súkkulaði plötu) í grófa bita og blandið saman við deigið með sleikju
- Rúllið deiginu upp í kúlur og bakið í ofni í 10-12 mínútur (mismunandi eftir ofnum - ég var með mínar í 12 en hann er oftast lengur en aðrir)
- Takið kökurnar úr ofninum og setjið á bökunargrind svo þær geti kólnað almennilega
Notes
Ef þið sjáið ekki þörf fyrir 24 smákökum er sniðugt að rúlla öllu deiginu upp í kúlur og frysta afganginn. Þá getur þú alltaf gripið í tilbúið kökudeig í frystinum og fengið þér nýbakaðar smákökur.
Þegar maður hitar upp frosið kökudeig þurfa kökurnar aðeins lengri tíma svo þá er gott að fylgjast með þeim.
