Go Back
vatnsdeigsbollur

þrjár tegundir af bollum

/ færslan er unnin í samstarfi við Nóa Síríus
Servings: 12 bollur

Ingredients
  

NAMMIBOLLUR
  • 4 vatnsdeigsbollur
  • 1/3 af rjómanum
  • berjasulta
  • 1 dl Nóa Kropp frá Nóa Síríus
  • 1 dl súkkulaðiperlur frá Nóa Síríus
  • 1 dl flórsykur
  • 1 msk kakó
  • 1/2 tsk vanilludropar
  • 1-2 msk vatn fer eftir hversu þykkan þú vilt hafa glassúrinn
KARAMELLUBOLLUR
  • 4 vatnsdeigsbollur
  • 1/3 af rjómanum
  • 2 dl karamellukurl frá Nóa Síríus
  • jarðaber
  • 60 g parlín súkkulaði með saltkaramellu frá Nóa Síríus
  • 3 msk rjómi
  • 2 dl flórsykur
  • 1/2 tsk vanilludropar
BANANABOLLUR
  • 4 vatnsdeigsbollur
  • 1/3 af rjómanum
  • 1 banani
  • 70 g rjómakúlur frá Nóa Síríus ca hálfur poki
  • 2 msk rjómi

Method
 

NAMMIBOLLUR
  1. Myljið Nóa Kropp og blandið saman við þeyttann rjómann ásamt súkkulaðiperlunum
  2. Blandið saman flórsykri, kakó, vanilludropum og vatni fyrir súkkulaði glassúr
  3. Fyllið bollurnar með sultu, rjóma og setjið súkkulaðiglassúr á toppinn
  4. Skreytið með súkkulaðiperlum
KARAMELLUBOLLUR
  1. Blandið karamellukurlinu við þeyttann rjómann
  2. Skerið jarðaberin
  3. Í lítinn pott, setjið parlín súkkulaði og 3 msk rjóma og bræðið við vægan hita. Þegar súkkulaðið hefur bráðnað alveg, bætið þið við flórsykrinum og vanilludropunum og pískrið saman þar til silki mjúkt
  4. Fyllið bollurnar með rjómanum, jarðaberjunum og smyrjið karamelluglassúrnum á toppinn
BANANABOLLUR
  1. Stappið banana með gaffli og blandið saman við þeyttann rjómann
  2. Í lítinn pott, blandið saman rjómakúlum og rjóma og bræðið við vægan hita
  3. Fyllið bollurnar með bananrjómanum og setjið rjómakúlusósuna á toppinn á bollunum