Skolið tómatana og setjið þá í eldfast mót ásamt hvítlauknum.
Hellið nóg af ólífu olíu yfir og kryddið. Notið hendurnar til þess að nudda öllu vel saman.
Gerið pláss í miðjunni fyrir ostinn, kryddið hann svo með aðeins meira af oregano og setjið meiri ólífu olíu á hann.
Setjið þetta inn í ofn við 180 gráður í 40 mínútur.
Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum á meðan.
Þegar tíminn er liðinn, takið tómatana og ostinn út. Stappið tómötunum og ostinum vel saman með gaffli svo að það verði að nokkurskonar sósu.
Bætið eldaða pastanu út í eldfasta mótið ásamt ferskri basiliku og blandið öllu vel saman.
Berið fram með prima donna osti eða parmesan osti.