Go Back

Tómat og geitaosta pasta

/ færslan er unnin í samstarfi við Pottagaldra
Total Time 25 minutes
Course: aðalréttur, hádegismatur, meatless monday
Cuisine: ítalskt

Ingredients
  

  • 250 g penne pasta
  • 1 msk ólífu olía
  • 1/2 laukur
  • 2 pressaðir hvítlauksgeirar
  • 425 g maukaðir tómatar
  • 1 tsk ítalskt pastakrydd frá Pottagölrum
  • 1/4 tsk chilliflögur frá Pottagöldrum
  • 2 msk mjúkur geitaostur
  • 1 msk fersk smátt söxuð basilika
  • salt & pipar eftir smekk

Method
 

  1. Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum
  2. Smátt saxið laukinn, pressið hvítlaukinn og steikið í smá stund upp úr olíu á pönnu
  3. Þegar laukurinn er orðinn mjúkur, bætið maukuðu tómötunum út á pönnuna ásamt ítalska pastakryddinu og chilliflögunum. Lækkið hitann og leyfið að malla í 10 mín
  4. Setjið geitaostinn og basiliku út í sósuna og hrærið þar til geitaosturinn hefur bráðnað alveg
  5. Takið af hitanum og hellið pastanu út á og hrærið allt vel saman
  6. Berið fram með ferskri basiliku og jafnvel parmesan ef þið eigið hann til - alls ekki nauðsynlegt