Ingredients
Method
- Blandið saman þurrgeri, sykri og volgu vatni í skál og leggið viskastykki eða eldhúspappír yfir og leggið til hliðar í 10 mínútur á meðan þið setjið restina af hráefnunum í hrærivélaskálina
- Í hrærivélaskálina setjið hveiti, hreinan kefir, volgt vatn, ólífu olíu og salt
- Setjið þurrgersblönduna út í og setjið krók á hrærivélina. Ef deigið er of klístrað, bætið smá meira hveiti við
- Þegar deigið er ekki lengur klístrað, létt olíuberið skálina og leyfið deiginu að hefast í um það bil klukkustund eða þar til deigið hefur tvöfaldast að stærð
- Á meðan deigið er að hefast er sniðugt að græja hvítlaukssmjörið. Bræðið smjörið og hrærið saman við hvítlauk og salti
- Skiptið deiginu í 8 kúlur
- Hitið smá olíu á pönnu - pannan á að vera MJÖG heit
- Fletið úr deiginu með puttunum og olíubornum disk, eins þykkt/þunnt og þú vilt hafa það. Ég flet úr eitt og set á pönnuna og byrja svo að fletja út næsta á meðan hitt er á pönnunni
- Þegar öll brauðin eru tilbúin, penslið þau með hvítlaukssmjörinu og stráið kóríander yfir
Notes
Berið fram með indverskum mat eins og til dæmis butter chicken - uppskrift hér.
Ef það er afgangur, mæli ég með að borða brauðið innan sólarhrings. Geyma það í zip lock poka við stofuhita. Hita það svo upp í örbylgju.
