/ uppskriftin er unnin í samstarfi við Krónuna
Ég hef aldrei verið neitt mikið hrifin af fisk en eftir að ég byrjaði að borða sushi fór ég að prufa mig áfram með bleikan fisk. Hér erum við með ofur einfalda ofnbakaða bleikju sem tekur enga stund að græja. Bæði hægt að ofnbaka eða grilla á góðum sumardegi 🙂


Ofnbökuð teriyaki bleikja
/ uppskriftin er unnin í samstarfi við Krónuna
Hráefni
- 600-700 g bleikjuflök frá Fiskverzlun Hafliða
- 1 msk brætt smjör
- salt
- 1/2 fetakubbur
- sesamfræ
- teriyaki sósa
- 2 vorlaukar
- kóríander eftir smekk
Aðferð
- Hitið ofninn – 200 gráður og undir + yfir hiti
- Takið eldhúspappír og þerrið aðeins bleikjuna
- Penslið bleikjuna með smjöri og saltið vel
- Stappið feta kubbinn og stráið 1/4 yfir bleikjuna
- Dreifið sesamfræjum yfir bleikjuna
- Hitið bleikjuna í ofni þar til hún er orðin elduð í gegn (ég notaði hitamæli og lét hana ná 60 gráðu hita og tók hana þá út, það tók um 15 mínútur í ofninum mínum)
- Á meðan bleikja er í ofninum sjóðið hrísgrjón og undirbúið restina af hráefnunum
- Þegar bleikjan er tilbúin penslið þið teriyaki sósunni yfir strax, stráið yfir restinni af fetaostinum, vorlauknum og kóríander
- Berið fram með hrísgrjónum og fersku salati