Ef þér finnst grillaður ananas góður – þá verður þú að prófa þennan rétt!
Marineraður kjúklingur borinn fram með æðislegum hrísgrjónum og fersku ananas salsa. Fljótlegt og auðveldur matur sem ætti að rata beint á vikumatseðilinn 🙂



Kjúklingur með hrísgrjónum og fersku ananas salsa
/ færslan er unnin í samstarfi við Danól
Hráefni
- 1 kjúklingabringa
- 1 tsk hreint jógúrt
- 1/4 tsk papriku krydd
- 1/4 tsk hvítlauksduft
- smá hunang
- smá lime safi
- salt og pipar eftir smekk
- 1 1/2 dl River Basmati hrísgrjón
- 200 g ferskur ananas
- 1/3 paprika
- 2 msk rauðlaukur
- 1 tsk jalapeno úr dós
- sterk sósa ég notaði sriracha mayo
Aðferð
- Skerið kjúklinginn í munnbita og setjið í skál
- Setjið jógúrtið, kryddin, hunang og lime út í skálina og blandið vel saman. Leyfið að marinerast á meðan þið græjið restina.
- Skerið ananasinn niður í bita og grillið í smá stund á hvorri hlið (ef þið fýlið ekki heitan ananas þá er alveg hægt að sleppa þessu skrefi en mér finnst það gera salsað ennþá betra)
- Skerið svo ananasinn niður í ennþá minni bita og setjið í skál
- Skerið paprikuna, rauðlaukinn og jalapenoið smátt og setjið í skálina með ananasnum
- Sjóðið River Basmati hrísgrjónin samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum
- Steikið kjúklinginn á pönnu
- Raðið á disk – hrísgrjón í botninn, svo kjúklingurinn, ananas salsað ofan á kjúklinginn og svo sterk sósa yfir allt.
Ráð
Auðvelt að stækka uppskriftina ef þess þarf 🙂