Snittubakki með ferskjum og burrata osti

Sumarlegur og góður snittubakki – fullkominn sem forréttur eða jafnvel bara þegar þú vilt hafa eitthvað létt í kvöldmatinn.

Ég hef verið að kaupa burrata ostinn í Costco, örugglega eina varan þarna inni sem er hægt að kaupa í stykkja tali. Hef ekki séð hann í neinni annari búð hingað til – ef þið hafið séð burrata ost annarstaðar, megið þið endilega láta mig vita 🙂

Snittubakki með ferskjum og burrata osti

Fullkominn forréttur á sumakvöldi
Skammtar 4 manns
Undirbúningur 10 minutes
Eldunartími 10 minutes
Heildartími 20 minutes

Hráefni

  • 1 burrata ostur
  • 400 g kirsuberja tómatar
  • 40 g furuhnetur
  • 1-2 ferskjur
  • 2 baguette brauð
  • 1 msk fersk basilika smátt söxuð
  • 1 hvítlauksgeiri
  • 3 msk hágæða ólífu olía
  • 1 msk sítrónusafi
  • salt og pipar eftir smekk

Aðferð

  • Skerið baguette brauðið niður í sneiðar og penslið með ólífu olíu
  • Setjið inn í ofn við 200 gráður í 10 mínútur
  • Létt ristið furuhneturnar á þurri pönnu og leggið til hliðar
  • Steikið ferskjurnar á pönnu þar til þær brúnast aðeins (hér má þurrsteikja eða nota smá olíu)
  • Blandið saman hágæða ólífu olíu, hvítlauk, basiliku, sítrónusafa, salti og pipar saman í skálq
  • Skerið tómatana í 4 bita
  • Setjið tómatana á bakkann sem þið ætlið að bera fram á
  • Setjið burrata ostinn í miðjuna
  • Raðið ferskjunum ofaná tómatana
  • Dreyfið furuhnetunum yfir allt og hellið svo olíu blöndunni yfir allt
  • Opnið burrata ostinn og berið fram með snittubrauðinu
Course: forréttur, meðlæti, snarl
Cuisine: ítalskt
Keyword: burrata, snittubakki, snittur

Leave a Reply

Close
© 2021 tinnath
Close