Ég elska þegar mig langar í eitthvað og ég á allt í það heima. Þessi hráefni eru nánast alltaf til inni í skáp hjá mér og tekur enga stund að útbúa. Þetta var ekki lengi að klárast þar sem strákurinn minn, gjörsamlega hakkaði þetta í sig. Hnetusmjörsbragðið er mjög vægt þar sem það er 50% sæta á móti því. Þó svo að þér finnist hnetusmjör ekki gott, þá mæli ég samt með að prófa – þetta kemur á óvart! Fullkomið með seinni parts kaffi bollanum 🙂
Það má að sjálfsögðu skipta hnetusmjörinu út fyrir möndlusmjör eða annað ef þér finnst það betra 🙂



Auðveldar cheerios stangir
Hráefni sem ég á nánast alltaf til heima hjá mér.
Hráefni
- 1 dl hnetusmjör
- 1 dl hunang
- 5 dl cheerios eða annað morgunkorn
- súkkulaði ég notaði 50/50 dökkt og hvítt
Aðferð
- Setjið hunangið og hnetusmjörið saman í skál – inn í örbylgjuofn í 30 sek, takið út og hrærið og svo aftur inn í 30 sek
- Setjið cheerios í skál og hellið hunangs og hnetusmjörsblöndunni yfir og blandið vel saman
- Pappírsklæðið eldfast mót (ég notaði 27x18cm) og hellið cheerios blöndunni í formið. Dreyfið vel svo það fylli í öll horn
- Setjið inn í frysti í 30 mínútur og bræðið súkkulaðið á meðan
- Skerið cheeriosið í stangir og setjið bráðið súkkulaði ofaná – aftur inn í frysti í 30 mínútur eða þar til þið ætlið að borða stangirnar
Ráð
Geymið í frysti. Mjög gott að borða eitt svona með kaffi bollanum 🙂