
Ég baka ekki oft köku en þessa hef ég bakað, ef ég man rétt, 4x á s.l. mánuði – þá hlýtur að vera eitthvað varið í hana. Ég sá þessa uppskrift á Tik Tok og ég bara varð að prófa. Hún er hættulega góð og ég veit ekki hversu mörgum ég hef þurft að senda uppskriftina eftir að þau fengu að smakka hana hjá mér! Þetta er eitthvað sem þið verðið að prófa á næstunni 🙂

Brownie með hvítu súkkulaði
Hráefni
- 150 g brætt smjör
- 250 g sykur
- 2 egg
- 150 g bráðið mjólkur súkkulaði
- 100 g hveiti
- 30 g kakó
- 1 tsk salt
- 150 g hvítt súkkulaði
Aðferð
- Bræðið smjörið við vægan hita
- Þeytið vel saman brædda smjörinu og sykrinum þar til blandað er orðin létt og ljós. Ég set hrærivélina á hæsta mögulega hraða og þetta tekur um 10-15 mínútur.
- Bætið við tveimur eggjum og þeytið aftur mjög vel, í að minnsta kosti 5 mínútur eða þar til blandan er aftur orðin létt og ljós
- Bræðið 150 g af mjólkursúkkulaði og setjið út í. Blandið þar til deigið er ekki lengur röndótt.
- Sigtið hveitið, kakóið og saltið og blandið varlega með sleif
- Bætið við 150 g af hvítu súkkulaði og blandið aftur varlega saman við með sleifinni
- Setið bökunarpappír í eldfastmót og dreyfið vel úr deiginu svo að hún fylli í öll horn
- Inn í ofn við 170 gráður í 30 mínútur (undir og yfir hiti)
- Setjið kökuna í kæli í að minnsta kosti 4 klst áður en hún er borin fram
- Ég sker oft endana í burtu og ber aðeins fram sléttu og fallegu bitana
Ráð
Ef þú ert að vinna þig nokkra daga fram í tímann er mjög sniðugt að skera kökuna í bita eins og þú vilt hafa hana og geyma í frysti. Taka hana svo út klst áður en þú ætlar að bera hana fram 🙂
Þegar ég hef búið kökuna til þá hef ég gert hana daginn áður en ég ætla að bera hana fram. Sett hana í kæli í að minnsta kosti 4 klst áður en ég sker hana í bita. Þegar ég sker hana svo í bita geri ég allt klárt, set hana á diskinn/bakkann sem ég ætla að bera þetta fram á og plastfilmu yfir.
ef þú prófar þessa uppskrift máttu endilega deila því með mér með því að senda mér mynd á instagram eða jafnvel tagga mig í story @tinnath